Nú erum við í framkvæmdastjórn SAU að hafa samband við þau fyrirtæki sem ekki eru félagar hjá okkur en hafa mætt á fundi og sýnt starfsemi samtakanna áhuga.
Með því að gerast félagi í samtökunum (SAU) leggur þú þitt lóð á vogarskálina í viðleitni SAU til þess að halda uppi öflugu fræðslustarfi og hagsmunagæslu fyrir auglýsendur í landinu.
Á þessu starfsári (sept.´07- maí´08) verður starfsemi SAU öflugri en nokkru sinni. Framkvæmdastjórnin mun hafa sér til fulltingis 2 nefndir eða verkefnahópa: fræðslunefnd, hagsmunagæsluhóp.
Markaðs- og sölustarf samtakanna verður og eflt til muna.
Haldið verður áfram að miðla fræðslu til félaga í SAU í gegnum fróðleiksmolana, greinaskrif, hádegisverðafundi og fræðslufundi auk nýjunga á borð við viðtöl við auglýsendur, leshringi og stuttar greinar þar sem auglýsendur eða aðrir sem koma að markaðslega boðmiðlunarferlinu setja fram skoðanir sínar.
Þáttur ráðgjafar í starfsemi SAU verður aukinn en hagsmunagæsla verður með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár þó búast megi við nýjum áherslum hvað varðar aðgreiningu hugmyndavinnu og hönnunar auglýsingastofa og ráðgjafar og úthringinga markaðsrannsóknafyrirtækja.
Félagar í SAU greiða lægri aðgangseyri og hafa forgang þegar kemur að fræðslufundum og ráðstefnum. Þeir hafa jafnframt forgang að ráðgjöf samtakanna. Tveggja klukkustunda frí ráðgjöf er innifalin í félagsgjaldinu.
Þú getur gerst félagi í SAU með því að senda tölvupóst þess efnis á sau@sau.is. Ef frekari upplýsinga er óskað er velkomið að hafa samband.