15. desember 2008 | 11:06
| Fréttir

Takmarkanir á auglýsingum RÚV


Í frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 6/2007 um Ríkisútvarpið ohf. (RÚV) er gert ráð fyrir ýmsum takmörkunum á birtingu sjónvarpsauglýsinga hjá RÚV. 
Það er hagur auglýsenda að geta áfram miðlað upplýsingum til neytenda með  góðum og hagkvæmum hætti í gegnum sjónvarpsauglýsingar.  Framkvæmdastjórn Samtaka auglýsenda (SAU), sem eru hagsmuna- og fræðslusamtök fyrir alla auglýsendur, fagnar því ef ofangreint frumvarp tryggir áfram að svo sé og treystir því að svo verði. 
Framkvæmdastjórn SAU varar hins vegar við því að RÚV verði „óheimilt að sýna auglýsingar á meðan á útsendingu barnaefnis stendur ... (og) ... að sýna auglýsingar sem beinast að börnum í 10 mínútur fyrir og eftir útsendingu slíks efnis.“  Takmarkanir af framangreindu tagi byggjast á ranghugmyndum leikmanna um áhrif auglýsinga almennt og á börn sérstaklega og eru slæmt fordæmi.  Nær væri að takamarka lengd og fjölda dagskrárkynninga RÚV því þær ýta undir kyrrsetu barna.
Framkvæmdastjórn SAU saknar þess að í ofangreindu frumvarpi er ekki tekið á þeim ósóma sem felst í því að RÚV greiðir auglýsinga- og birtingastofum þjónustulaun fyrir að hafa milligöngu um birtingar auglýsinga hjá sér.  Þetta leiðir til ógagnsæis og hugsanlegra hagsmunaárekstra.  Auglýsendur vita ekki hvort auglýsinga- eða birtingastofurnar eru að ráða þeim heilt varðandi auglýsingabirtingar eða hvort valið á RÚV sem auglýsingamiðli hafi ráðist af því hve það greiddi stofunum há þjónustulaun!  Framkvæmdastjórn SAU leggur til að í frumvarpinu verði RÚV bannað að greiða þjónustulaun til stofanna en þess í stað skikkað til að hækka viðskiptaafslætti auglýsenda sem þeim nemur.  Auglýsendum væri þá í sjálfsvald sett, eins og eðlilegt er, hvort og þá hvað mikið þeir vildu greiða stofunum fyrir að sjá um auglýsingabirtingar á RÚV fyrir sig.  

Framkvæmdastjórn SAU

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is