13. maí 2008 | 20:18
| Fréttir

Stjórnun markaðsstarfs II

  Nýtt námskeið

Stjórnun markaðsstarfs II
 
  
Í framhaldi af frábærum viðtökum námskeiðsins - Stjórnun markaðsstarfs I, hafa Samtök auglýsenda (SAU) ákveðið að bjóða upp á framhaldsnámskeiðið - Stjórnun markaðsstarfs II fyrir þá sem koma að stjórnun markaðsstarfs fyrirtækja.  Í þessu námskeiði er farið yfir markaðshneigð, vöruþróun, verðlagningu, sjónvarp, útvarp og dagblöð sem auglýsingamiðla, samsettar birtingaáætlanir/samninga við miðla og nýjungar í fjölmiðlarannsóknum. 
 
Farið er yfir hina ýmsu ferla sem hægt er að nota til að gera ákvarðanatöku markvissari, auka tekjur og/eða lækka kostnað.  Síðast en ekki síst þá eiga þeir sem koma að markaðssmálum að geta, eftir námskeiðið, orðið kröfuharðari kaupendur þjónustu hinna ýmsu aðila í markaðs-samskiptaferlinu.  Hér er því um einstakt tækifæri að ræða fyrir  þá sem koma að markaðsmálum fyrirtækja og stofnana.  
 
Efni námskeiðsins:
 
·         Markaðshneigð
·         Vöruþróun
·         Verðlagning
·         Sjónvarp sem auglýsingamiðill
·         Útvarp sem auglýsingamiðill
·         Dagblöð sem auglýsingamiðill
·         Samsettar birtingaáætlanir/samningar við miðla
·         Fjölmiðlakannanir
 
Fyrirlesari: Friðrik Eysteinsson, rekstrarhagfræðingur og formaður Samtaka auglýsenda.
 
Tími:  Föstudaginn 16. maí kl. 9:00 – 17:00. 
 
Staður: Hótel Loftleiðir.
 
Verð: Fyrir SAU félaga og styrktaraðila samtakanna kr. 24.000 en aðra kr. 30.000.  Léttar veitingar verða í boði í hádeginu og kaffi og meðlæti yfir daginn.  Námskeiðsgögn eru innifalin í verði.
 
Hámarksfjöldi þátttakenda er 20.  Félagar í SAU og styrktaraðilar hafa forgang.
 
Þeim sem hafa áhuga á að skrá sig á ofangreint námskeið er bent á að senda staðfestingu þess efnis á sau@sau.is
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is