06. mars 2008 | 12:29
| Fréttir

Dagnámskeið 14. mars 2008 - Stjórnun markaðsstarfs l
 
Á námskeiðinu er farið yfir helstu þættina varðandi stefnumótun markaðsmála og uppbyggingu vörumerkjavirðis, ákvarðanatöku í markaðssamskiptum, samninga við auglýsingastofur, birtingahús og miðla og mat á árangri.  Skoðaðir eru hinir ýmsu ferlar sem hægt er að nota til að gera ákvarðanatöku markvissari og lækka kostnað.  Síðast en ekki síst þá eiga þeir sem koma að markaðsmálum fyrirtækja og stofnana að geta, eftir námskeiðið, orðið kröfuharðari kaupendur þjónustu hinna ýmsu aðila í markaðssamskiptaferlinu.  Hér er því um einstakt tækifæri fyrir  þá sem koma að markaðsmálum að ræða.

Efni námskeiðsins:

     • Stefnumótun markaðsmála & mat á árangri 
     • Gerð sölu- og markaðsáætlana 
     • Uppbygging vörumerkjavirðis 
     • Samningar við stofur, birtingahús og miðla 
     • Auglýsingagerð & auglýsingamælingar 
     • Grunnatriði birtingaáætlanagerðar 
     • Söluhvatar 
     • Kostanir

Fyrirlesari: Friðrik Eysteinsson, rekstrarhagfræðingur og formaður Samtaka auglýsenda.

Tími:  Föstudaginn 14. mars kl. 9:00 – 17:00. 

Staður: Radison SAS Hótel Saga.

Verð: Fyrir SAU félaga kr. 24.000 en aðra kr. 30.000.  Léttar veitingar verða í boði í hádeginu og kaffi og meðlæti yfir daginn.  Eintak af bókinni Stefnumótun markaðsmála: Auglýsingar og árangur eftir Friðrik Eysteinsson er innifalin í námskeiðsgjaldinu.  Þátttakendur fá að auki veglega möppu með greinum og öðru ítarefni.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 en félagar í SAU hafa forgang.

Þeim sem hafa áhuga á að skrá sig á ofangreint námskeið er bent á að senda staðfestingu þess efnis á sau@sau.is.

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is