13. febrúar 2008 | 21:36
Stjórnun markaðsstarfs I
Vegna gífurlega góðra viðtaka síðastliðna vetur hafa Samtök auglýsenda (SAU) ákveðið að bjóða enn einu sinni upp á dagsnámskeið fyrir þá sem koma að stjórnun markaðsstarfs fyrirtækja og stofnana þar sem farið er yfir helstu þættina varðandi stefnumótun markaðsmála og uppbyggingu vörumerkjavirðis, ákvarðanatöku í markaðssamskiptum, samninga við auglýsingastofur, birtingahús og miðla og mat á árangri.
Á námskeiðinu er farið yfir hina ýmsu ferla sem hægt er að nota til að gera ákvarðanatöku markvissari og lækka kostnað. Síðast en ekki síst þá eiga þeir sem koma að markaðsmálum fyrirtækja og stofnana að geta, eftir námskeiðið, orðið kröfuharðari kaupendur þjónustu hinna ýmsu aðila í markaðssamskiptaferlinu. Hér er því um einstakt tækifæri fyrir þá sem koma að markaðsmálum að ræða
Efni námskeiðsins:
-
Stefnumótun markaðsmála & mat á árangri
-
Gerð sölu- og markaðsáætlana
-
Uppbygging vörumerkjavirðis
-
Samningar við stofur, birtingahús og miðla
-
Auglýsingagerð & auglýsingamælingar
-
Grunnatriði birtingaáætlanagerðar
-
Söluhvatar
-
Kostanir
Fyrirlesari: Friðrik Eysteinsson, rekstrarhagfræðingur og formaður Samtaka auglýsenda.
Tími: Föstudaginn 22. febrúar kl. 9:00 – 17:00.
Staður: Hótel Loftleiðir.
Verð: Fyrir SAU félaga kr. 24.000 en aðra kr. 30.000. Léttar veitingar verða í boði í hádeginu og kaffi og meðlæti yfir daginn. Eintak af bókinni Stefnumótun markaðsmála: Auglýsingar og árangur eftir Friðrik Eysteinsson er innifalin í námskeiðsgjaldinu. Þátttakendur fá að auki veglega möppu með greinum og öðru ítarefni.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 en félagar í SAU hafa forgang.
Þeim sem hafa áhuga á að skrá sig á ofangreint námskeið er bent á að senda staðfestingu þess efnis á
sau@sau.is.