10. febrúar 2008 | 10:55
| Fréttir

Stefnumiðuð markaðsáætlanagerð - í heimsklassa!

Stefnumiðuð markaðsáætlanagerð - í heimsklassa!

 

Prófessor Malcolm McDonald, fremsti hugsuður Evrópu á sviði stefnumiðaðrar markaðsfærslu og einn af markaðsfræðigúrúunum, mun halda fyrirlestur um stefnumiðaða markaðsáætlanagerð á Íslandi 27. febrúar nk. á námstefnu SAU og Birtingahússins.

Emeritus Professor Malcolm McDonald

Malcolm McDonald MA (Onon), MSc, PhD, D.Litt. FCIM FRSA stundaði nám við háskólana í Oxford, Bradford og Cranfield.  Hann var, þangað til nýlega, prófessor í markaðsfræðum við Cranfield University en er nú prófessor við viðskiptaháskólana í Henley, Warwick, Aston og Bradford.  Malcolm hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, meðal annars sem markaðsstjóri.  Hann er í stjórnum sex fyrirtækja og mikið af tíma hans fer í að vinna með stjórnum stærstu fyrirtækja heims svo sem IBM, Xerox og BP. 

  

Malcolm hefur skrifað 40 bækur, þar á meðal metsölubókina “Marketing Plans; how to prepare them; how to use them” auk fjölda greina.  Hann er mjög eftirsóttur fyrirlesari og ráðgjafi og sannkallaður hvalreki fyrir íslenskt markaðsfólk og aðra sem koma að markaðsmálum! 

 

Um hvað snýst námstefnan?

 

·         Að útskýra í smáatriðum í hverju stefnumiðuð markaðsáætlanagerð í heimsklassa er fólgin

·         Að tryggja að þátttakendur hafi nægilega þekkingu og færni til þess að innleiða ferlið

 

Fyrir hverja?

Forstjóra/framkvæmdastjóra, fjármálastjóra og yfirmenn markaðsmála, starfsfólk auglýsingastofa, birtingahúsa, markaðsrannsóknafyrirtækja og fjölmiðla.

 

Staður og stund

Hótel Loftleiðir þann 27. febrúar nk. milli kl. 9 og 12.

 

Verð, skráning og fjöldi þátttakenda

Fyrir SAU félaga kr. 15.900 ef gengið er frá skráningu eigi síðar en 20. febrúar nk.  Verð fyrir aðra er kr. 19.900.  Ráðstefnugögn og léttar veitingar innifalið í verði.  Skráning þátttakenda fer fram á sau.is en fjöldi þeirra er takmarkaður við 100 vegna forms námstefnunnar.

Skráning hér

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is