23. janúar 2008 | 21:00
| Fréttir

Fræðslufundur - Mælingar á virkni sjónvarpsauglýsinga
 
Fræðslufundur verður haldin á vegum Samtaka auglýsenda fimmtudaginn 31.
janúar nk. kl. 12.00 - 13:30 á Hótel Loftleiðum. Fyrirlesari
er Ólafur Þór Gylfason framkvæmdastjóri MMR/Market- and Media Research.

Umfjöllunarefni fundarins: er "Mælingar á virkni sjónvarpsauglýsinga"
Sjónvarpsauglýsingar eru í grundvallaratriðum öðruvísi en
prentauglýsingar. Munurinn skýrist fyrst og fremst af því að þær spila á
fleiri skilningarvit en prentauglýsingar. En hvernig tekst okkur að nýta
þessa eiginleika sem sjónvarpsauglýsingar hafa umfram prentið og hvernig
getum við mælt árangurinn?

Kynntar verða nýjar leiðir á sviði auglýsingarannsókna sem miða að því að
skýra hvernig sjónvarpsauglýsingar örva neytendur og skapa eftirvæntingu
fyrir skilaboðum auglýsinga.

MMR / Market and Media Research sérhæfir sig í auglýsingarannsóknum og
hefur þróað spennandi aðferðafræði við prófun auglýsinga sem hefur fengið
góðar viðtökur og er víða notuð.

Ólafur er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu
í aðferða og tölfræði (Social Research Methods/Statistics) frá London
School of Economics.

Ólafur starfaði áður sem rannsóknastjóri hjá PricewaterhouseCoopers
(Hagvangi) í Reykjavík, Associate Director á rannsóknar og þróunarsviði
Research International í London og framkvæmdastjóri Birtingahússins.
Ólafur hefur stýrt hundruðum rannsókna á sviði markaðsmála, meðal sérsviða
hans eru auglýsingarannsóknir, markaðshlutun, vörumerkjavirði og
vöruþróun.

Fræðslufundurinn er eingöngu fyrir fulltrúa fyrirtækja sem eru félagar í
Samtökum auglýsenda.

Þátttökugjald er kr. 3.600.  Léttar veitingar í boði.

Vinsamlegast sendið staðsetningu á sau@sau.is
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is