11. júní 2007 | 09:59
| Fréttir

Aðalfundur SAU 28. júní nk.

 

Aðalfundur Samtaka auglýsenda verður haldinn fimmtudaginn 28. júní 2007 í  skrifstofum N1, Dalbraut 10-14 í Kópavogi og hefst fundurinn kl. 17:00.  

 

Atkvæðisrétt á aðalfundi hefur einn fulltrúi frá hverju skuldlausu aðildarfyrirtæki SAU.  

Tillögur um breytingar á samþykktum skal leggja fram til stjórnar viku fyrir aðalfund. Stjórn er skylt að leggja fram allar tillögur um breytingar á samþykktum, en slíkar tillögur öðlast gildi með samþykki a.m.k. 2/3 félagsmanna sem sækja aðalfund.

 

Dagskrá:

 

1.        Setning fundar, kosning embættismanna aðalfundar.

2.        Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.

3.        Reikningar samtakanna lagðir fram til samþykktar.

4.        Stjórnarkjör sbr. 4. kafla samþykktanna.

5.        Kosning skoðunarmanns reikninga.  

6.        Félagsgjöld.

7.        Lagabreytingar og tillögur stjórnar.

8.        Tillaga stjórnar um verkefnaáætlun fyrir næsta starfsár.

9.        Önnur mál.

 

F.h. framkvæmdastjórnar SAU,

Árni Geir Jónsson

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is