26. apríl 2007 | 10:01
| Fréttir

Námstefna SAU og Birtingahússins 10. Maí 2007 - Paul Feldwick

Málið snýst ekki um HVAÐ þú segir heldur HVERNIG þú segir það!

 

Paul Feldwick, einn af virtustu og reyndustu sérfræðingum heims í skipulagningu auglýsingaherferða mun halda fyrirlestur um auglýsingagerð – hvað hafi verið rangt við hana sl. 50 ár og hvernig hún eigi að vera, á Íslandi 10. maí nk. á námstefnu SAU og Birtingahússins.

Paul Feldwick

Paul Feldwick MA MSc FMRS FIPA FRSA stundaði nám við Monmouth School and Trinity College í Oxford og University of Bath Management School.  Hann vann hjá auglýsingastofunni Boase Massimi Pollitt frá 1974 til 1992 og síðan hjá DDB þangað til hann stofnaði eigið ráðgjafarfyrirtæki á síðasta ári.  Paul hefur því yfir 30 ára reynslu af skipulagningu auglýsingaherferða bæði á Bretlandi og heimsvísu og hefur unnið til fjölda verðlauna. 

  

Bók Paul Feldwick What is Brand Equity, Anyway? kom út árið 2002 en auk hennar hefur hann skrifað fjölda greina.  Paul þykir frábær fyrirlesari og mun máli sínu til stuðnings vitna í nýjustu rannsóknir og taka mörg dæmi. 

 

Umfjöllunarefni námstefnunnar

 

·         Hvernig heldur markaðsfólk og fagfólk í auglýsingageiranum að auglýsingar virki?

·         Hvernig virka vel heppnaðar auglýsingar í raun?

·         Hverju þurfum við að breyta?

 

Fyrir hverja?

Forstjóra/framkvæmdastjóra, fjármálastjóra og yfirmenn markaðsmála, starfsfólk auglýsingastofa, birtingahúsa, markaðsrannsóknafyrirtækja og fjölmiðla.

 

Staður og stund

Nordica Hotel þann 10. maí nk. milli kl. 9 og 12.

 

Verð, skráning og fjöldi þátttakenda

Fyrir SAU félaga kr. 15.900 ef gengið er frá skráningu eigi síðar en 3. maí nk.  Verð fyrir aðra er kr. 19.900.  Ráðstefnugögn og léttar veitingar innifalið í verði.  Skráning þátttakenda fer fram á sau.is en fjöldi þeirra er takmarkaður við 100 vegna forms námstefnunnar.

Smellið hér til að skrá ykkur

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is