18. október 2006 | 13:42
| Fréttir

RIMC 2006 Internet markaðssetning og samskipti

Nordic eMarketing í samvinnu við Leit.is, Viðskiptablaðið, Útflutningsráð Íslands og Chris Sherman stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu og fagsýningu, RIMC 2006. Tuttugu og einn fyrirlesari munu fjalla um Internetið, markaðssetningu á Internetinu og samskipti og yfir 30 innlend sem og erlend fyrirtæki kynna starfsemi sína þar að lútandi.  

RIMC 2006 verður haldin á Grand hótel fimmtudaginn 2. nóv. og föstudaginn 3. nóv. n.k. og stendur yfir allan daginn báða daga.

 

Þema RIMC verður markaðssetning og markaðssamskipti á Internetinu.  Hvernig má breyta heimsókn á vef í viðskipti út frá markaðslegu sjónarhorni.  Ekki verður fjallað um tæknilegu hlið Internetmarkaðssetningar og hentar atburðurinn því vel stjórnendum og markaðsstjórum stórra sem smárra fyrirtækja sem vilja ná árangri í starfi.

 

RIMC 2006 er ómissandi uppákoma fyrir þá sem þurfa að ná athygli nýrra markaða á sem hagkvæmastan hátt, betrumbæta núverandi árangur sinn eða skilja hvernig á að mæla hann og nýta sér þær mælingar til frekari árangurs. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Chris Sherman sem er aðalritstjóri SearchEngineWatch.com og er mjög áhrifamikill sérfræðingur um Internetið.

 

Meðal fyrirlesara verða

-          Dr. Brian Clifton PhD yfirmaður vefgreiningarhluta Google

-          Johnn Riccardi vörustjóri hjá Yahoo! Search

-          Chris Sherman aðalritstjóri Search Engine Watch

-          Bill Hunt sérlegur markaðsstjóri IBM á Internetinu

-          Mel Carson frá Microsoft MSN

-          Graham Hansell frá SiteLynx o.fl.

 

Auk þessara stóru nafna má finna frábæra fyrirlesara, erlenda og íslenska sem allir eru þekktir fyrir framúrskarandi árangur í sínu fagi.

Allir fyrirlesararnir hafa verið sérstaklega valdir með það í huga að ráðstefnan skilji mikið eftir sig fyrir þátttakendur.

Samkvæmt Kristjáni Má Haukssyni forsvarsmanni og einum aðaleiganda Nordic
eMarketing er ekki um tækni- eða forritunarráðstefnu að ræða, heldur alþjóðlegan atburð
fyrir stjórnendur og markaðsfólk sem vill ná árangri í markaðssetningu á Internetinu.

50 fyrstu sem skrá sig á ráðstefnuna fara í pott og eiga möguleika á að
vinna fræðibækur eftir Chris Sherman, Bill Hunt og Shari Thurow.

Miðaverði er stillt í hóf eins og mögulegt er en auk þess fá meðlimir WAA, ÍMARK, SKÝ, SVEF, FVH, SAU og SAF afslátt af verði.

Nordic eMarketing er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í Internetmarkaðssetningu og -ráðgjöf og vinnur sem slíkt fyrir mörg af helstu fyrirtækjum landsins auk þess að starfa erlendis m.a. fyrir Hitachi í Evrópu.

Upplýsingar um ráðstefnuna og sýninguna má finna á
www.emarketing.is eða hjá Sveini S.
Kjartanssyni framkvæmdastjóra í síma 540 9500 eða með tölvupósti
info@emarketing.is.

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is