15. september 2006 | 10:34
| Fréttir

Björn Walliser á Íslandi 28.9. 2006- Námstefna um Kostanir

Björn Walliser, markaðsfræðiprófessor og einn helsti sérfræðingur heims í kostunum - stjórnun þeirra og virkni, mun halda fyrirlestur á Íslandi 28. september nk. á námstefnu SAU og Birtingahússins.

 

Björn Walliser

Björn Walliser stundaði nám við University of Stuttgart-Hohenheim í Þýskalandi, University of Los Angeles (UCLA), Paris Graduate School of Management (ESCP) og University of Granoble í Frakklandi þaðan sem hann lauk doktorsnámi 1994.  Hann gegnir nú stöðu prófessors í markaðsfræðum við University of Nancy 2 í Frakklandi, jafnframt því að vera yfirmaður rannsókna hjá ICN School of Mangement. 

 

Björn Walliser hefur skrifað bækur um kostanir, einn og með öðrum, og fjölda greina sem birst hafa í leiðandi alþjóðlegum tímaritum.  Hann hefur jafnframt verið ráðgjafi ýmissa fyrirtækja og heldur reglulega fyrirlestra um kostanir á alþjóðlegum ráðstefnum.

 

 

Umfjöllunarefni námstefnunnar

 

·        Kostanir og rannsóknir á þeim

Hvernig hafa kostanir þróast og hverjar eru helstu niðurstöður rannsókna á þeim?

·        Stjórnun kostana

            Hvernig á að ná hámarksárangri út úr kostunum?

·        Áhrif kostana og mælingar á þeim

Borga kostanir sig?  Hvernig vitum við það?

 

 

Fyrir hverja?

Forstjóra/framkvæmdastjóra, fjármálastjóra og yfirmenn markaðsmála, starfsfólk auglýsingastofa, birtingahúsa, markaðsrannsóknafyrirtækja og fjölmiðla.

 

Staður og stund

Hótel Loftleiðir (bíósalur) þann 28. september n.k. milli kl. 9 og 12.

 

Verð, skráning og fjöldi þátttakenda

Fyrir SAU félaga kr. 15.900 ef gengið er frá skráningu eigi síðar en 21. september nk.  Verð fyrir aðra er kr. 19.900.  Ráðstefnugögn og léttar veitingar innifalið í verði.  Skráning þátttakenda fer fram á sau.is en fjöldi þeirra er takmarkaður við 100 vegna forms námstefnunnar.

Smellið hér til að skrá ykkur

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is