Vegna gífurlega góðra viðtaka undanfarna vetur hafa Samtök auglýsenda (SAU) ákveðið að bjóða enn einu sinni upp á dagsnámskeið fyrir markaðsstjóra (markaðssérfræðinga/vörumerkjastjóra/vörustjóra/afurðastjóra) þar sem farið er yfir helstu þættina varðandi stefnumótun markaðsmála og uppbyggingu vörumerkjavirðis, ákvarðanatöku í markaðssamskiptum, samninga við auglýsingastofur, birtingahús og miðla og mat á árangri.
Á námskeiðinu er farið yfir hina ýmsu ferla sem hægt er að nota til að gera ákvarðanatöku markvissari og lækka kostnað. Síðast en ekki síst þá eiga markaðsstjórarnir, eftir námskeiðið, að geta orðið kröfuharðari kaupendur þjónustu hinna ýmsu aðila í markaðssamskiptaferlinu. Hér er því um einstakt tækifæri fyrir markaðsstjóra að ræða.
Efni námskeiðsins:
· Stefnumótun markaðsmála & mat á árangri
· Gerð sölu- og markaðsáætlana
· Uppbygging vörumerkjavirðis
· Samningar við stofur, birtingahús og miðla
· Auglýsingagerð & auglýsingamælingar
· Grunnatriði birtingaáætlanagerðar
· Söluhvatar
· Kostanir
Fyrirlesari: Friðrik Eysteinsson, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi formaður Samtaka auglýsenda.
Tími: Föstudaginn 15. september kl. 9:00 – 17:00.
Staður: Hótel Loftleiðir.
Verð: Fyrir SAU félaga og styrktaraðila samtakanna kr. 24.000 en aðra kr. 30.000. Léttar veitingar verða í boði í hádeginu og kaffi og meðlæti yfir daginn. Eintak af bókinni Stefnumótun markaðsmála: Auglýsingar og árangur eftir Friðrik Eysteinsson er innifalin í námskeiðsgjaldinu. Þátttakendur fá að auki veglega möppu með greinum og öðru ítarefni.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 20. Félagar í SAU og styrktaraðilar hafa forgang.
Þeim sem hafa áhuga á að skrá sig á ofangreint námskeið er bent á að senda staðfestingu þess efnis á sau@sau.is.