18. september 2008 | 10:04
| Fréttir

Stjórnun markaðsstarfs II

Í framhaldi af frábærum viðtökum námskeiðsins - Stjórnun markaðsstarfs I, bjóða Samtök auglýsenda (SAU) upp á framhaldsnámskeiðið - Stjórnun markaðsstarfs II fyrir þá sem koma að stjórnun markaðsstarfs fyrirtækja. Í þessu námskeiði er yfir markaðshneigð, vöruþróun, verðlagningu, sjónvarp, útvarp og dagblöð sem auglýsingamiðla (auglýsingagerð/birtingar), samsettar birtingaáætlanir/samninga við miðla og nýjungar í fjölmiðlarannsóknum. 
 
Farið er yfir hina ýmsu ferla sem hægt er að nota til að gera ákvarðanatöku markvissari, auka tekjur og/eða lækka kostnað. Síðast en ekki síst þá eiga þeir sem koma að markaðssmálum að geta, eftir námskeiðið, orðið kröfuharðari kaupendur þjónustu hinna ýmsu aðila í markaðs-samskiptaferlinu. Hér er því um einstakt tækifæri að ræða fyrir þá sem koma að markaðsmálum fyrirtækja og stofnana.  
 
Efni námskeiðsins:
 
·         Markaðshneigð
·         Vöruþróun
·         Verðlagning
·         Sjónvarp sem auglýsingamiðill
·         Útvarp sem auglýsingamiðill
·         Dagblöð sem auglýsingamiðill
·         Samsettar birtingaáætlanir/samningar við miðla
·         Fjölmiðlakannanir
 
Fyrirlesari: Friðrik Eysteinsson, rekstrarhagfræðingur og formaður Samtaka auglýsenda.
 
Tími: Föstudaginn 3. október kl. 9:00 – 17:00. 
 
Staður: Hótel Loftleiði, þingsalur 6.
 
Verð: Fyrir SAU félaga er kr. 24.000 ef þátttaka er bókuð fyrir lok vinnudags 26. september en aðra kr. 30.000. Léttar veitingar verða í boði í hádeginu og kaffi og meðlæti yfir daginn. Námskeiðsgögn eru innifalin í verði.
 
Hámarksfjöldi þátttakenda er 20. Félagar í SAU hafa forgang.
 
Þeim sem hafa áhuga á að skrá sig á ofangreint námskeið er bent á að senda staðfestingu þess efnis á sau@sau.is.

Til baka

 
Póstlisti SAU
 
Netfang: *
Tek við HTML pósti *

 


Samtök auglýsenda - pósthólf 649 - 122 Reykjavík - sau@sau.is