13. maí 2008 | 20:18

Nýtt námskeið
Stjórnun markaðsstarfs II
Í framhaldi af frábærum viðtökum námskeiðsins - Stjórnun markaðsstarfs I, hafa Samtök auglýsenda (SAU) ákveðið að bjóða upp á framhaldsnámskeiðið - Stjórnun markaðsstarfs II fyrir þá sem koma að stjórnun markaðsstarfs fyrirtækja. Í þessu námskeiði er farið yfir markaðshneigð, vöruþróun, verðlagningu, sjónvarp, útvarp og dagblöð sem auglýsingamiðla, samsettar birtingaáætlanir/samninga við miðla og nýjungar í fjölmiðlarannsóknum.
Farið er yfir hina ýmsu ferla sem hægt er að nota til að gera ákvarðanatöku markvissari, auka tekjur og/eða lækka kostnað. Síðast en ekki síst þá eiga þeir sem koma að markaðssmálum að geta, eftir námskeiðið, orðið kröfuharðari kaupendur þjónustu hinna ýmsu aðila í markaðs-samskiptaferlinu. Hér er því um einstakt tækifæri að ræða fyrir þá sem koma að markaðsmálum fyrirtækja og stofnana.
Efni námskeiðsins:
· Markaðshneigð
· Vöruþróun
· Verðlagning
· Sjónvarp sem auglýsingamiðill
· Útvarp sem auglýsingamiðill
· Dagblöð sem auglýsingamiðill
· Samsettar birtingaáætlanir/samningar við miðla
· Fjölmiðlakannanir
Fyrirlesari: Friðrik Eysteinsson, rekstrarhagfræðingur og formaður Samtaka auglýsenda.
Tími: Föstudaginn 16. maí kl. 9:00 – 17:00.
Staður: Hótel Loftleiðir.
Verð: Fyrir SAU félaga og styrktaraðila samtakanna kr. 24.000 en aðra kr. 30.000. Léttar veitingar verða í boði í hádeginu og kaffi og meðlæti yfir daginn. Námskeiðsgögn eru innifalin í verði.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 20. Félagar í SAU og styrktaraðilar hafa forgang.
Þeim sem hafa áhuga á að skrá sig á ofangreint námskeið er bent á að senda staðfestingu þess efnis á sau@sau.is